Páskablogg

Jæja eins og stendur er ég allavega aðeins farinn að blogga meira en ég gerði þökk sé smá frítíma. Ég fæ samt smá samviskubit því ég ætti að nýta tímann meira í að læra en ég er á svona semi-góðu róli með lærdóminn. Ég verð í góðum gír þangað til skólinn byrjar aftur á miðvikudaginn og læri þar inn á milli, síðan byrja bara prófin sjálf í næstu viku. Ótrúlegt hvað þetta er allt að líða hratt.

Ég keypti mér kólus páskaegg til styrktar MS félagsins fyrr í þessum mánuði og sé hálfpartinn eftir því, ekki að hafa styrkt MS, ég er mjög stoltur af því, bara afþví þessi páskaegg eru vond. Ég keypti eins egg í fyrra af systur minni en fannst það vera betra, ég veit ekki kannski er ég bara að ímynda mér eitthvað, ég held ég kaupi allavega Nóa Síríus næst, súkkulaðið þeirra er ommnommnomm.

En talandi um súkkulaði, ég er að éta allt of mikið af því og fæ smá samviskubit, ég er samt ekki nálægt því að vera búinn með eggið. En ég var að hugsa mér að fara í gott megrunarprógram núna eftir páskanna, reyna að losa af mér kannski 20-30 kg. Það er stórt markmið en ég tel mig geta það, ég þarf bara að breyta matarræðinu, borða oftar og hætta að drekka gos, ég held að það sé alveg gerlegt. Síðan ætla ég að puða eins mikið og ég get í sjúkraþjálfun og í handboltanum, jafnvel fara að taka göngutúra ef veðrið fer að skána eitthvað (er farinn að halda að veðrið sé með einhver geðræn vandamál). Ég get þetta þó ekki án stuðnings ykkar þessvegna væri alveg æðislegt ef ég gæti fengið hvatningu frá ykkur vinum mínum, jafnast ekkert á við pepp frá vinum og vandamönnum svo látið í ykkur heyra!

Ég ætla að ljúka þessu með lagi sem er búið að halda geðheilsunni minni uppi undanfarna daga, þetta er cello beatboxing lag sem heitir Julie-O. Allavega óska ég ykkur gleðilegra páska og vonandi fer sumarið að koma.

Engin ummæli

Framtíðin og fortíðin

Þetta er alveg svakalegt hvað maður gleymir stundum að skrifa einhverjar færslur, við erum að tala um næstum hálft ár síðan ég skrifaði síðast en mér finnst eins og ég hafi byrjað með þetta blogg fyrir kannski mánuði. Það er samt ekkert búið að vera mikið að gera hjá mér, einhvernmegin missir maður bara blogg matarlystina. Ég var þó að skoða gömul blogg sem ég hef skrifað í gegnum tíðina alveg frá árinu 2006 og ég vildi ekki að þau týndust svo ég ákvað bara að færa þau hingað, mér þykir nefnilega ótrúlega vænt um þessi skrif þó þau séu svakalega klisjuleg og væmin eitthvað.. Á þessum tíma skrifaði ég á ensku því ég var mikið í sambandi við útlenskt lið og því fannst mér ekkert sjálfsagðara enn að deila lífi mínu með þeim enda alveg hreint út sagt frábært fólk! Þið getið allavega kíkt á þessar færslur hérna hægra megin á síðunni (Greinasafn).

Ég er núna að læra undir lokaprófin og vonandi í síðasta skipti fyrir menntaskólapróf, ég er nefnilega að fara að útskrifast í vor ef allt gengur eins og það á að gera. Síðan er stefnan tekin á tölvunarfræði í HR og hlakkar mig mikið til því HR lítur út fyrir að vera frábær skóli og svo hjálpar það líka að kannst við nokkra sem eru í námi þarna núna og nokkra sem eru að fara að byrja núna í haust einnig. Í raun ætti ég að vera að læra núna en ég á í einhverjum erfiðleikum við að byrja, vonandi fæ ég lærdómsmatarlystina núna eftir þessi skrif.

Síðan er það sumarverkefnið í sumar, þetta verður það stærsta til þessa. Mér finnst ég alltaf vera að segja þetta ár eftir ár en það er alveg satt, þau stækka eftir hvert sumarið. Núna erum við búnir að fá styrk frá EUF (Evrópa unga fólksins) og síðan nokkra minni styrki frá öðrum. Planið er að vera með sketcha fyrsta mánuðinn en fara síðan í útvarpsrekstur seinni mánuðinn, það er allavega spennandi sumar framundan.

Ég er að spá í að hafa þetta ekki lengra í bili og vonandi líður ekki svona langur tími þangað til ég skrifa eitthvað aftur.

Engin ummæli

Gleðilega hrekkjavöku!

HrekkjavakaAlltaf gott að taka smá þema tengd blogg þegar maður má við því. Annars er voðalega lítið að frétta nema það að ég missti vinnuna í þarsíðustu viku sem er kannski ekkert það hræðilegasta í heimi þarsem ég var orðinn mjög leiður á henni hvort eð er. Ég er líka kominn með nýjan aðstoðarmann sem er frábært, þökk sé facebook síðunni sem ég bjó til, ekki vissi ég að einn lítill kassi af bjór myndi ná athygli yfir 7.000 manns! Alltsaman frekar fáránlegt. En að gærdeginum þar sem það var nú einu sinni hrekkjavaka en ég beilaði allhressilega á því kvöldi og ég sé svona kannski smá eftir því, það hefði verið ógeðslega fyndið að fara niður í bæ í einhverjum svaka búning. Við vorum að spá í að búa til svona skriðdreka utan um stólinn sem hefði verið klikkað svalt nema kannski frekar fyrirferðamikið og leiðinlegt til lengdar. Svo á ég reyndar hermannabúning og hjálm og læti sem ég hefði getað notað en einhvernmegin bara nennti ég ekki niður í bæ. Þetta eru einu frídagarnir sem ég fæ þar sem ég þarf ekki að vakna klukkan 7 á morgnanna og einhvernmeginn finnst mér það fáránlegt að fara niðrí bæ og koma svo kannski heim um 5-6 leitið og þá sofa bara til hádegis, þá er helgin alveg búin fyrir manni, sérstaklega þar sem þú fokkar sólahringnum alveg upp og verður hellaður út vikuna líka. Nei takk.

Ég horfði á bíómynd í gærkveldi sem heitir Scott Pilgrim vs The World sem var hérna í bíó á Íslandi í einn dag eða eitthvað, sem var fáránlegt miða við hversu lengi bíóin nauðguðu trailernum svona hálfu ári áður en myndin var frumsýnd (segi svona). En hún er alveg hreint út sagt frábær! Ef þú ert smá nörd í þér, fílar tónlist og svona “alternitive” bíómyndir þá er þetta myndin fyrir þig. Ég hef allavega aldrei hlegið jafn hátt og mikið yfir einni bíómynd áður, hún er líka að fá góða dóma og hún er með 8.3 á IMDB sem er mjög hátt miða við að hún hefur nú ekki verið mikið sýnd.

En svo vorum við strákarnir líka að stofna hjólastólahandboltaráð í HK sem er alveg frábært, við getum semsagt loksins byrjað að æfa fljótlega eins og atvinnumenn. Hver veit svo nema maður fari á samning einhverstaðar í Þýskalandi í framtíðinni? En ég nenni ekki að skrifa meira í bili, verið heil!

Engin ummæli

Engin friður!

Ég hef eiginlega ekki haft tíma fyrir neitt því miður, ég er búinn að ætla að gera helling en einhvernmegin fresta ég því alltaf útaf skólanum. Ef það er ekki einhver brjálaður lærdómur eða próf þá er maður bara uppgefinn heima að gera ekki neitt, nákvæmlega eins og dagurinn í dag. Var það heppinn að fá frí úr síðasta tímanum mínum sem var eftir alveg stórt hlé svo ég var kominn heim rétt fyrir tólf sem var frekar awesome! Svo er miðannarfrí á mánudaginn og þriðjudaginn sem er líka æðislegt, ætli ég nýti það ekki í að vinna og kannski vinna smá upp heimalærdóm. Allavega nóg um skólann í bili.

Ég er strax farinn að undirbúa næsta sumar sem er ekki slæmt, bæði persónulegur undirbúningur og svo hugmyndir fyrir oryrki.is líka. Maður ætlar að fara að koma sér í form sem er ekkert nema gott, svo er maður kominn í eitthvað æfingarprógram á sunnudögum og svo vonandi hjólastólahandbolti sem byrjar einhverntíman í vetur. Ég hef samt ekki enn valið hvort útvarpið ætti að vera aftur í sumar eða hvort við ættum að fara aftur yfir í sketchana. Ég vil gera bæði en það bara gengur ekki með svona lítinn starfskraft og bæði er svo tímafrekt. Hvað finnst ykkur? Sketchar eða útvarp? Svo er líka hugmyndin að sækja í Evrópusjóði til að styrkja þetta og læti, það verður allavega mikið pælt í budgetnum í sumar, því ef ég vil fara í útvarpið aftur vil ég gera það almennilega og senda allavega 100% út á höfuðborgarsvæðinu og svo strax á netinu líka, svo ef við fáum þessa styrki þá þurfum við ekkert að spá í auglýsingunum eða fyrirtækjunum sem redduðu þeim sem er fínt, helvítis bjúrókrattar alveg að drepa mann í einhverju kjaftæði og ekki láta mig byrja á STEF maður, ég hætti bara frekar að tala um þetta.

Svo er maður strax farinn að spá í tónlistinni fyrir næsta sumar, maður gerir alltaf svona playlista með sumarlegum lögum, er að fara yfir tíunda áratuginn núna, mikið af góðu rokki á þeim tíma, endilega látið mig vita ef þið lumið á einhverjum góðum lögum.

Annars ætla ég nú ekki að hafa þetta lengra, bara þangað til næst!

Engin ummæli

Lan, skóli og vesen!

Loksins nennti ég að logga mig hingað inn og skrifa eitthvað, eftir langt frí. Hey ég er þó allavega betri en hann Halldór (bloggið hans er hér). Það er margt og mikið búið að gerast og þessvegna ætla ég að hafa þetta blogg í hólfum og þið getið bara lesið það sem þið hafið áhuga á því margt af þessu er bara eitthvað nördastuff. Allavega þá ætla ég að byrja á eldri hlutunum og skrifa mig upp í það nýjasta svo here you go.

Nýr system diskur í tölvuna

Fyrir svona tæpum tvem vikum ákvað ég að kaupa mér nýjann harðan disk í tölvuna þar sem gamli var mjög gamall og farinn að bottlenecka tölvuna mína. Fyrir þá sem vita ekki hvað bottleneck er þá er þetta sama conceptið og í umferðinni nema hugsið bara um gögn í staðinn fyrir bíla. Allavega þá fann ég fínann disk á viðráðanlegu verði og skelli mér bara á hann. Loks kem ég heim og set diskinn í og byrja að strauja tölvuna, ekkert svakalegt vesen þar sem maður er með Windows 7, ég man hvað það var mikið vesen að uppfæra t.d. driverana í WinXP og fyrri útgáfum, sérstaklega ef þú varst ekki með neina diska við hendina. En tölvan var orðin starfhæf samdægurs og ég byrjaði að athuga hvort þetta væri ekki betra. Ég var smá vonsvikinn hvað þetta breytti litlu, þó ég væri með þrefalt stærri buffer, þó sami snúningur (7500rpm). Ég er þó allavega kominn með meira pláss, sem var farið að vanta.

LAN heima

Eftir langan tíma ákváðum við nörda vinirnir loks að hittast og spila tölvuleiki að stunda ólöglegt niðurhal eins og engin væri morgundagurinn (ef Smáís eða STEF eru að lesa þetta þá var ég bara að djóka). Óholl fæða, lítill svefn og ósnyrtileiki var í fyrirrúmi og var þetta bara nokkuð skemmtilegt, þó langt í frá skemmtilegasta heimaLAN sem ég hef verið í. Leikir eins og Starcraft2, Trackmania og League of Legends voru aðallega spilaðir en þó var gripið í einhverjas aðra leiki. Takk fyrir helgina strákar.

Skólinn byrjaður og stóllinn bilar

Í gær var svo fyrsti skóladagurinn og lýst mér bara mjög vel á þetta eftir langa fjarveru. Ég stefni á að ná símatinu í öllum áföngunum því þá kemst ég í utanlandsferð núna í desember með vinnunni, góður hvati á ferð. Þetta verður erfitt en langt í frá ómögulegt. Ég hef allavega ekkert merkilegra að segja um skólan nema það að í gærkveldi bilaði helvítis hjólastóllinn minn og varastóllinn í ruglinu, ég komst því ekki í skólann í dag en fór þessa skemmtilegu ferð 07:45 niður í Grafarholt að heila upp á fólkið hjá Hjálpartækjamiðstöðinni en þegar þangað var komið opnaði ekki fyrr en 08:30 mér til mikillar gremju. Ég og Egill vorum þarna fyrir utan með hvolpaaugun að vopni og þessi góðhjarta kona sa okkur og hleypti okkur inn, þá voru víst bara allir komnir í vinnuna og ekkert mál að taka á móti okkur, þau fá stórt props fyrir þetta þarni niður í Hjálpartækjamiðstöð. Svo um hádegið var stóllinn kominn úr viðgerð og ég fékk hann til mín seinni partinn en því miður heill skóladagur farinn í vaksinn og lítill skilningur í skólanum, heyrði t.d. setninguna “ef bíllinn minn bilar þá fyndi ég bara aðra leið til að komast í skólann”, greinilegt að þessi einstaklingur veit ekki rassgat í sinn haus, ekki eins og ég geti bara hoppað upp í strætó og gengið í skólann. Allavega ég nenni ekki að pirrast yfir þessu svo ég læt þetta bara næga.

Engin ummæli

Loftsteinadrífa

Ég varð nokkuð spenntur þegar ég las fréttina af Vísi um að loftsteinadrífa ætti að sjást vel hér á Íslandi eftir miðnætti í gær. Það spenntur að ég ákvað að skella mér út til að verða almennilega vitni að þessu. Ég bý í Fossvoginum svo auðvitað ákvað ég að skella mér upp í Öskjuhlíð. Ég var örugglega kominn þangað um klukkan 12 á miðnætti og búinn að stara upp í loftið allan tímann, þó var skýjað að hluta en það stoppaði mig ekki, ég vildi sjá loftsteina. Þegar ég var þangað kominn hugsaði ég með mér að þetta væri nú kannski ekkert sniðugt, aleinn í Öskjuhlíðinni eftir miðnætti í hjólastólnum með ekkert ljós eða neitt og algjört myrkur. Ég var þarna örugglega í klukkutíma húkandi í einhverju rjóðri og göngustígum. Þegar klukkan var að ganga eitt um nóttina ákvað ég að fara að koma mér heim, frekar fúll að hafa ekki séð einn einasta loftstein enda mikill áhugamaður um geimvísindi. Ég fann einhvern veg sem ég hafði aldrei áður farið og ákvað bara að taka hann því hann stefndi akkúrat í áttina heim, mjög fallegt umhverfi og bara nokkuð þægilegt að rúnta þarna í gegn en allt í einu sé ég í skillti þarna í myrkrinu. Ég ákveð að stoppa og sjá hvað stendur á því, kannski var eitthvað um þennan stað sem ég var að rúnta um. Á skilltinu stendur að þetta sé Sólland og að það sé duftgarður Fossvogskirkjugarðs. Þó að þetta hafi verið mjög fallegur staður þá fer ímyndunaraflið alveg með þig ef þú ert staddur í kirkjugarði eftir miðnætti svo ég ákvað að drífa mig í burtu. Loks komst ég að göngustígnum sem fer heim til mín og bruna í burtu vonsvikinn fyrir að hafa ekki séð neitt.

Er einhver hérna sem var vitni að þessu? Hef lítið sem ekkert heyrt um þetta.

Allavega, myndin sem fylgir þessari færslu er af einhverri halastjörnu sem sást hérna árið 2007 en þar sem fréttaflutningur um geimvísindi sökka á Íslandi fann ég ekki hvað hún heitir. Ef einhver man eftir þessu má alveg nefna það í comment, takk.

Engin ummæli

Föstudagsstuð

Datt í hug að skella inn stuttri færslu og henda inn lagi með uppáhalds hljómsveitinni minni, ef þetta kemur þér ekki í stuðið þá er eitthvað að þér. Endilega dreyfið þessu svo til vina ykkar sem vantar smá pepplag. Þetta er lagið I’m Your Daddy.

I thought tonight would suck like every other night
I’d party with my friends
But when I saw you grooving on the dance floor
Normal came to an end

We started talking and man, it was so clear to me
There’s no one else like you
You got the brains, the body, and the beauty
To top it off, you’re cool

This ain’t impossible
This ain’t improbable
You are my baby tonight
And I’m your daddy

This ain’t believable
This ain’t predictable
You are my baby tonight
And I’m your daddy

I hope that I ain’t freaking you out
You probably hear it all the time
I swear I ain’t like those other boys
I’m a special kind

I would like to give a demonstration
Of what it is I do
I’ll take you out to dinner at Palermo’s
Spinach cheese fondu

This ain’t impossible
This ain’t improbable
You are my baby tonight
And I’m your daddy

This ain’t believable
This ain’t predictable
You are my baby tonight
And I’m your daddy

I will egg the goomba
If you tire
Try my best to moonwalk
On the wire

I just want to, ooh ah,
Feel your fire
Feel your fire
Feel your fire!

This ain’t impossible
This ain’t improbable
You are my baby tonight
And I’m your daddy

This ain’t believable
This ain’t predictable
You are my baby tonight
And I’m your daddy

Engin ummæli

Boðberi?

Úr myndinni "Boðberi"Þar sem ég er kominn í tveggja vikna frí ákvað ég að skella mér í bíó með honum Arnari félaga mínum. Við ákváðum að taka smá kvikmyndaáhættu og skella okkur á Boðbera þar sem við vissum að það væri ekki langt þangað til hún myndi hætta í bíó. Ég hafði séð að hún væri sýnd klukkan 17:50 í dag á midi.is en svo hringir Arnar í mig smá stressaður og segist ekkert sjá hana auglýsta í blöðunum fyrr en seinna um kvöldið. Til að vera með þetta alveg á hreinu þá ákveð ég að hringja í Sambíóin og viti menn, pían í afgreiðsluni segir að myndin sé sýnd klukkan 17:50. Við pældum bara ekkert meira í því og hittumst svo bara í Sambíóunum Álfabakka svona rúmlega fjögur. Arnar fer í miðasöluna og kaupir miða handa sér og svo skellum við okkur í sjoppuna til að kaupa popp og kók fyrir myndina og svo komum við okkur bara fyrir inn í sal. Það mætti svo taka það fram að ég spurði einhvern starfsmann þarna á ganginum í hvaða sal myndin væri og ég fékk þau svör að hún væri í sal tvö. Nú við förum bara inn í salinn og erum nokkuð kátir því við virðumst vera þeir einu í salnum. Síðan byrja trailerarnir og allt í góðum gír nema eftir svona þrjá trailera þá kemur einhver gaur inn í salinn. Segir hann okkur að það hafi orðið einhver mistök og að myndin sé ekki sýnd á þessum tíma heldur bara seinna um kvöldið.

Eftir að við fáum þessar fréttir spyr ég hvernig á þessu stendur þar sem ég hafði fengið staðfestingu frá tveimur starfsmönnum og midi.is. Gaurinn kemur með einhverja útskýringu sem við skiljum alls ekki en við nennum nú ekki að vera að þræta í gaurnum svo við förum bara út. Sem betur fer þá fékk hann Arnar miðann sinn endurgreiddan og svo fáum við eitthvað gjafabréf í sjoppuna. Ég var nú samt ekki nógu sáttur við þetta enda kominn alla þessa leið og kominn bókstaflega inn í salin þegar þessi “mistök” koma í ljós. Það var komin smá tilhlökkun í mann að sjá Boðbera. Til að toppa þessa glötuðu bíóferð þá er þetta síðasti dagurinn sem þessi mynd er í bíó og er hún eflaust að enda í þessum skrifuðu orðum. En það var svosem ekkert hægt að gera svo við fórum bara í sitthvora áttina ég og Arnar.

Endilega skrifið eitthvað í comments ef þú hefur einhverja svipaða sögu að segja, alltaf gaman að lesa um svona klúður hjá stórfyrirtækjunum.

Engin ummæli

Fyrsta verkefnið á volvan.is

Eins og ég sagði í síðasta pósti þá er tilgangur með þessu skrítna léni, ætli ég útskýri kannski ekki hugmyndina á bakvið nafnið volvan.is fyrst. Völva er komið úr norrænni goðafræði og merkir í rauninni spákona, ef við köfum enn lengra ofan í uppruna nafnsins getur það líka þýtt “sá sem ber galdrastaf” en það kannski skiptir ekki öllu máli. Þetta á að vera síða tengd tölvum, tækni, kvikmyndum og ljósmyndum og því vannst mér þetta nafn algjörlega passa við þetta verkefni. Ef þú brýtur niður nafnið tölva þá færðu einmitt völva og tala. En núna aftur að fyrsta verkefninu.

Það er einmitt portfólíó sem ég, Halldór, Aðalbjörg og Höskuldur ætlum að vera með til að byrja með, hver veit svo með framhaldið, kannski bætast aðrir ljósmyndarar við. Þetta ljósmynda portfólíó heitir HAHA Portfólíó en þetta eru einmitt upphafsstafirnir í nöfnunum okkar. Síðan er á haha.volvan.is, mæli með að allir kíki á þetta í framtíðinni, það er kannski ekki mikið þarna núna en þetta mun stækka með tímanum. Svo mun ég taka tíma í að útskýra næstu verkefni því þau verða talsvert stærri en þetta portfolíó.

Engin ummæli

Ö-FM 106,5 – Hvíldu í friði

Þar sem ástin erÉg veit eiginlega ekki hvað skal segja, þetta er eitt af mínum uppáhalds verkefnum sem ég hef staðið að. Mig hefur dreymt í meira en 10 ár að stofna útvarpsstöð og núna 1. júní 2010 rættist sá draumur þegar við strákarnir í Götuhernaðinum (oryrki.is) skelltum einni upp. Þetta er mjög krefjandi og tók hátt í 6 mánuði að skipuleggja þetta frá toppi til táar. Maður þarf að sækja um tíðni, fá leyfi frá Útvarpsréttarnefnd, STEF og SFH. Svo þori ég varla að nefna kostnaðinn við þetta alltsaman, þetta var útvarpsstöð sem sendi bara út á höfuðborgarsvæðinu og var kostnaðurinn hátt upp í milljón krónur og fór lang mesti peningurinn til STEF (skrifa kannski meira um þá glæpastarfsemi seinna). Síðan komu hlutir eins og dagskrá, fá fleiri starfsmenn og margt margt fleira og allur undirbúningurinn unninn einn af mér launalaust og ég var í vinnu og átti kærustu á þeim tíma svo þetta var ekki alltaf dans á rósum en þó alveg 100% þess virði! Nú er það bara spurningin hvað við gerum næsta sumar, hvort við verðum með útvarp aftur eða kannski þróum verkefnið okkar enn frekar.

Annars talandi um verkefni þá er ég vonandi að láta tvo aðra drauma fara að rætast núna á næstunni og allt tengt þessu léni (volvan.is) en það tengist bæði kvikmyndun, bíómyndum og til að byrja með tölvumörkuðum á Íslandi en hver veit nema þetta eigi eftir að tengjast öllum marköðum á Íslandi í framtíðinni, hver veit. Annars er þetta allt bara í hausnum á mér ennþá en ég hef þó verið að hugsa þetta lengi og er búinn að vera að skrifa niður fleiri og fleiri hugmyndir. Meira um það síðar.

Annars ef þið viljið kynna ykkur Götuhernaðinn og skoða það sem við höfum verið að gera þá skalltu skella þér á oryrki.is og flétta í gegnum þá síðu, margt mjög skemmtilegt sem eflaust margir hefðu gaman af. Annars bara læt ég þetta duga þangað til næst.

Engin ummæli